Kristján Oddsson kvensjúkdómalæknir

Höfundur: eythork_s1i9o6y4 þann 9. júní 2016

 

Kristján er sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingahjálp.

 

Störf

Kristján hefur starfað sem sjálfstætt starfandi sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingahjálp á eigin kvenlækningastofu frá 2003 samhliða öðrum störfum. Í dag starfar hann sem yfirlæknir og sviðsstjóri Leitarstöðvarinnar en hefur áður starfað sem yfirlæknir og aðstoðarlandlæknir hjá Embætti landlæknis og yfirlæknir hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.

Fyrir utan almennar kvensjúkdómalækningar hefur Kristján sérstakan áhuga á leghálskrabbameinsleit, HPV og leghálsspeglunum og sækir reglulega ráðstefnur og námskeið á sínu sérsviði.

 

Nám

Kristján lauk embættisprófi í læknisfræði frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1989 og sérnámi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum við St. Olav háskólasjúkrahúsið í Þrándheimi í Noregi. Áður hafði hann lokið sérnámi í heimilislækningum. Hann lauk einnig Master of Public Health (MPH) námi frá Universitetet í Tromsö í Noregi, Master of Healthcare Administraion (MHA) frá Minnisota University í Bandaríkjunum og diploma í rekstarhagfræði (Postgraduate Diploma in Business Administration) frá Hariot-Watt University í Edninborg í Skotlandi.