Berglind Steffensen kvensjúkdómalæknir

Höfundur: eythork_s1i9o6y4 þann 9. júní 2016

 

Berglind er sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingahjálp.

 

Störf

Berglind hefur starfað sem sjálfstætt starfandi sérfræðingur í kvensjúkdómum og fæðingahjálp á eigin kvenlækningastofu frá 2004 samhliða starfi sínu sem sem sérfræðingur í fæðingahjálp- og kvensjúkdómum við Kvennadeild Landspítalans.

Fyrir utan almennar kvensjúkdómalækningar hefur Berglind sérstakan áhuga á fæðingarhjálp og sækir reglulega ráðstefnur og námskeið á sínu sérsviði.

 

Nám

Berglind lauk embættisprófi í læknisfræði frá læknadeild Háskóla Íslands árið 1993 og sérnámi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum við St. Olav háskólasjúkrahúsið í Þrándheimi í Noregi.